|
Fyrirtækið Verslun, þjónustuverkstæði og skrifstofa Fálkans eru að Suðurlandabraut 8 í Reykjavík.
Verslunin skiptist í þrjú megin þjónustusvið, sem eru: Bíla- og vélavörur, véltæknivörur og raftæknivörur. Verslun og afgreiðsla eru til húsa á 2. hæð, gengið inn hvort heldur er götumegin frá eða að ofanverðu. Helstu vöruflokkar eru: legur, legusett í hjól og gírkassa, hjöruliðir fyrir framdrifsbíla, hjöruliðskrossar, ásþétti, vélaþétti, höggdeyfar, hemlahlutir, kúplingar, viftu- og kílreimar, reimskífur, drif- og flutningskeðjur, tannhjól, ástengi, bón og bílasnyrtivöru, húsgagna- og vagnhjól. Helstu vöruflokkar eru: niðurfærslugírar, snekkjudrif, kambhjólagírar, lokar, drifbúnaður fyrir loka, gufugildrur, gufulokar, gufustjórnbúnaður, miðflóttaaflsdælur, brunndælur, slógdælur, snigildælur, skömmtunardælur, skólphreinsibúnaður og fiskmjölsbúnaður. Helstu vöruflokkar eru: rafmótorar, gírmótorar, spólurofar, yfirálagsvarnir, hraðabreytar, mjúkræsar, hnappar, hnappabox, skynjarar, fótósellur, iðntölvur, sjálfvör, tímaliðar, aflrofar, straumskinnur, töflur, skápar, bindivélar, bindiefni, loftræstiviftur, blásarar og rafmagnshandverkfæri.
Þjónustuverkstæðið er sérhæft rafvélaverkstæði, sem veitir viðgerðarþjónustu fyrir söluvörur Fálkans og annast jafnframt allar almennar rafvéla- og rafeindaviðgerðir.
Skrifstofa Fálkans sér um símsvörun, innflutning, bókhald, rekstur upplýsingakerfa og fjármál fyrirtækisins, þar með talið innheimtu og greiðslu reikninga. |