|
Fréttir
24/7/2009
Miklar nýjungar í iðntölvum
frá Schneider Electric
Twido - Twido Suite
Komin er út ný útgáfa V2.2 af forritunarhugbúnaðinum Twido Suite fyrir litlu iðntölvuna Twido, fjölmargar nýjungar koma þeð þessari útgáfu þar á meðal er hermiforrit þannig að það er hægt að prófa forritin án þess að vera með iðntölvu. Einng eru komnir fleiri möguleikar með CAN-Open tenginagar við hraðastýringar fjarlægar inn/út einingar o.fl.. Þá er hægt að kafla skipta forritinu sem auðveldar yfirsýn yfir forritið, þá eru einnig komnir nýjar I/O einigar.
Þessi hugbúnaður heitir "Power Suite" og er frír og hægt að sækja hann á heimasíðu Schneider
Vefkrækja í hugbúnaðinn Twido Suite.
Vefkrækja í upplýsingar um Twido
M-340 - Unity 2.10
M-340 iðntölvan hefur fengið frábærar viðtökur hér síðan hún kom á markað. Síðustu misseri hafa komið fjölmargar nýjunagar varðandi þessa iðntölvu, má þar nefana að nú er hægt að hafa uppí fjóra aukarekka frá sömu CPU einingu, þ.e. hægt að koma fyrir 36 I/O einingum í þessa iðntölvu sem varla getur þá talist lítil með þessum viðbótum. Þá eru komnir auknir möguleikar á CAN-Open tengingum án þess að þura að vera með sérstakan hugbúnað til þess að setja upp CAN-Open, þetta er allt orðið inni í foritunarhugbúnaðinum Unity Pro V4.10.
Unity Pro er mjög vinnusparandi forritunarhugbúnaður
Unity forritunarhugbúnaður fyrir M-340 Premium og Modicon Quantum iðntölvur. Þetta er alveg ný kynslóð af forritunarhugbúnaði sem er mun opnari heldur en áður hefur þekkst. Þar má t.d. nefna XML, Visual Basic (VBA), innbyggð Ethernet TCP/IP tenging, vefþjónn í iðntölvunni, E-mail frá PLC (SMTP), grafísk animation o.fl.
Hermiforrit (simulator) fyrir allar iðntölvurnar
Forritunar mál, 5 IEC 61131-3,
LD: Ladder Diagram
IL: Instruction List
ST: Structure Text
SFC: Sequential Function Chart
FBD: Function Block Diagram + innbyggt aðgerðar safn.
Vefkrækja í hugbúnaðinn Unity Pro
Vefkrækja í upplýsingar um M-340
Til baka...
|